Talsmaður Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta greindi frá því í dag að Pútín hefði verið boðið sæti í friðarráði sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hyggst setja á fót yfir Gaza. Ráðið byggir á tillögum hans að friði sem urðu að vopnahléi á Gaza.Dmitry Peskov, talsmaður Pútíns, sagði í dag að Trump hefði sent Pútín boð sem Rússar væru að fara yfir.„Pútín forseti hefur líka fengið boð um að taka sæti í friðarráðinu.“Trump tilkynnti á dögunum að hann væri búinn að stofna friðarráðið. Þá var ekki búið að tilkynna hverjir tækju sæti í ráðinu en Trump sagði að þetta yrði mesta og virðulegasta stjórn allra tíma.Þegar hafði legið fyrir að Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, og Jared Kushner, tengdasonur Trumps, yrðu meðal þeirra fimmtán sem skipa ráðið.Marco Rubio, utanríkisráð