Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Blautt og vindasamt

Þó að vindurinn þurfi strangt til tekið að ná 24,5 metrum á sekúndu til að kallast rok er hætt við að margir líti til veðurs í dag og sjái rok og rigningu. Útlit er fyrir allhvassan vind, allt að fimmtán metra á sekúndu, og skúrir eða jafnvel él í dag.Veðurspáin er svohljóðandi:Suðaustanátt í dag, allvíða á bilinu átta til fimmtán metrar á sekúndu. Skúrir eða él, en léttir til norðanlands seinnipartinn. Kólnar heldur í veðri, hiti frá frostmarki að fimm stigum þegar líður að kvöldi.Austlæg átt fimm til þrettán á morgun. Skúrir eða él sunnanlands, en þurrt fyrir norðan. Snjókoma eða slydda með köflum á austanverðu landinu síðdegis, en einnig á Norðurlandi annað kvöld. Léttir til í öðrum landshlutum. Hiti breytist lítið.
Blautt og vindasamt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta