Að minnsta kosti 39 eru látnir og tugir slasaðir eftir árekstur á milli tveggja lesta í suðurhluta Spánar á sunnudagskvöld. Lestarslysið varð nærri bænum Adamuz þegar háhraðalest á leið frá Malaga til Madrídar fór út af sporinu og inn á aðra lestarteina. Önnur lest sem var á leiðinni í hina áttina, frá Madríd til Huelva, fór einnig út af sporinu.Lestarfélagið Iryo, sem sá um lestarferðina frá Malaga, sagði um 300 farþega hafa verið um borð. Spænskir fjölmiðlar hafa gefið til kynna að alls hafi verið um 400 manns um borð í báðum lestunum.Antonio Sanz, heilbrigðisráðherra sjálfstjórnarsvæðisins Andalúsíu, sagði 73 farþega hafa verið flutta á sex sjúkrahús. Hann tók fram að einn lestarvagninn hafi oltið niður fjögurra metra langa brekku. „Við eigum erfiða nótt fram undan,“ sagði hann.Francisc