Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

María Ellen býður sig fram sem oddviti Viðreisnar í Kópavogi

María Ellen Steingrímsdóttir hefur tilkynnt að hún gefur kost á sér sem oddviti Viðreisnar í Kópavogi í komandi sveitarstjórnarkosningum. María Ellen hefur setið í setið í Menntaráði og Jafnréttis- og mannréttindaráði Kópavogsbæjar sem fulltrúi Viðreisnar. Þá var hún einnig varaforseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar.Prófkjör Viðreisnar í Kópavogi fer fram þann 7. febrúar. „Ástæðan fyrir því að ég býð mig fram til forystu eru málefni ungs fólks og barnafjölskyldna í Kópavogi. Það þarf að lækka leikskólagjöldin og forgangsraða meira fjármagni í grunnskólana,“ segir María Ellen í framboðstilkynningu sinni. María Ellen Steingrímsdóttir vill leiða lista Viðreisnar í Kópavogi.Aðsend
María Ellen býður sig fram sem oddviti Viðreisnar í Kópavogi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta