Sjö tjadneskir hermenn voru drepnir í átökum við súdanska RSF-uppreisnarherinn við landamæri Tjad og Súdans á fimmtudaginn. Talsmaður ríkisstjórnar Tjad, Mahamat Cherif Gassim, tilkynnti þetta á föstudaginn.„Vopnaðir hópar á vegum Bráðastuðningssveitanna (RSF), sem berjast í innanlandsófriðnum í Súdan, rufu ólöglega landamærin og hófu hernaðaraðgerðir á tjadnesku yfirráðasvæði gegn varnar- og öryggissveitum og almennum borgurum í austurhluta landsins,“ sagði Gassim í tilkynningunni. Hann áréttaði jafnframt að atvikið fæli í sér „skýrt, alvarlegt og ítrekað brot gegn landamærahelgi og fullveldi Lýðveldisins Tjad.“Gassim undirstrikaði að Tjad tæki ekki afstöðu með neinum í borgarastyrjöldinni í Súdan og að ríkið sætti sig ekki við að átökin væru flutt inn á yfirráðasvæði sitt. Í tilkynningun