Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Undirrituðu fríverslunarsamning ESB og Mercosur

Fulltrúar Evrópusambandsins og Mercosur-bandalagsins í Suður-Ameríku undirrituðu fríverslunarsamning sín á milli í Asunción í Paragvæ á laugardag. Rætt hafði verið um samninginn í meira en aldarfjórðung og fyrirætlanir um hann höfðu verið bitbein meðal sumra aðildarríkja ESB. Áætlað er að með samningnum falli 90% allra tolla á milli verslunarsvæðanna smám saman úr gildi.Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sagði ekki unnt að gera of mikið úr mikilvægi samkomulagsins. „Við veljum fríverslun frekar en tolla. Við veljum ábatasamt langtímasamstarf umfram einangrun,“ sagði hún við undirritunarathöfnina.António Costa, forseti leiðtogaráðs ESB, sagði samkomulagið senda „skilaboð til varnar fríverslun er byggi á reglum, marghliða samvinnu og þjóðarétti til grundvalla
Undirrituðu fríverslunarsamning ESB og Mercosur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta