Yfirkjörstjórn Úganda lýsti sitjandi forseta landsins, Yoweri Museveni, sigurvegara nýafstaðinna forsetakosninga á laugardaginn. Samkvæmt opinberum talningum hlaut Museveni tæplega 72% atkvæða en helsti keppinautur hans, Bobi Wine, um 24%. Óljóst er hvar Wine er niður kominn. Á föstudaginn, daginn eftir kosningarnar, fullyrtu bandamenn hans að öryggissveitir stjórnarinnar hefðu gert áhlaup á heimili hans og numið hann á brott með herþyrlu. Úgöndsk stjórnvöld höfnuðu þessu. Í dag staðfesti Wine hins vegar á samfélagsmiðlum að hann hefði komist undan.„Ég vil staðfesta að mér tókst að sleppa frá þeim,“ skrifaði Wine á samfélagsmiðlinum X (áður Twitter). „Sem stendur er ég ekki heima en konan mín og aðrir ættingjar eru enn í stofufangelsi. Ég veit að þessir glæpamenn leita að mér um allt og ég