Manfred Weber, leiðtogi EPP, stærsta flokkahópsins á Evrópuþinginu, segir að fresta eigi staðfestingu þingsins á tollasamningi sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gerði við Bandaríkjastjórn síðasta sumar.„EPP er fylgjandi viðskiptasamningi Evrópusambandsins og Bandaríkjanna, en í ljósi hótana Donalds Trump gagnvart Grænlandi, þá er ekki hægt að staðfesta þennan samning nú,“ skrifaði Weber á samfélagsmiðilinn X í kvöld. „Ákvörðun um tollfrjálsar vörur frá Bandaríkjunum verður að fresta,“ segir Weber og bætir við myllumerki um evrópska samstöðu.EPP (European People´s Party) er stærsti flokkahópurinn á Evrópuþinginu, með 188 þingmenn. Hópurinn er þar að auki hryggjarstykkið í þeim meirihluta sem myndaður var eftir kosningarnar til Evrópuþingsins 2024 og stendur að baki Ursulu von der Leyen