Karolína Helga Símonardóttir mun leiða lista Viðreisnar í Hafnarfirði eftir sigur í rafrænu prófkjöri sem fór fram í dag. Karolína segist spennt fyrir kröftugri kosningabaráttu í vor.„Mér er efst í huga mikið þakklæti til félagsfólks okkar í Hafnarfirði. Þetta hefur verið snörp en skemmtileg prófkjörsbarátta, ég þakka Jóni Inga fyrir drengilega baráttu,“ segir Karólína Helga. Úrslitin voru kunngjörð á fjölmennri kosningavöku í kvöld.Karolína hlaut alls 312 atkvæði í 1. sæti og annað sætið hlaut Árni Stefán Guðjónsson með 361 atkvæði í 1. og 2. sæti. Jón Ingi Hákonarson og Hjördís Lára Hlíðberg sóttust einnig eftir oddvitasætinu. Alls voru 753 á kjörskrá en kjörsókn var 82%.Viðreisn hefur átt fulltrúa í bæjarstjórn Hafnarfjarðar frá árinu 2018.