Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir fyrirtæki og sveitarfélög ekki hafa staðið við sínar skuldbindingar í kjarasamningum. Í nóvember mældist verðbólga 3,7%, sú lægsta í fimm ár. Mánuði síðar, í lok árs, hafði hún hækkað í 4,5%.Spár bankana fyrir janúar eru mismunandi, en gangi þær verstu eftir verður verðbólga 5,1% í lok janúar. Það yrði mesta verðbólga síðan í október 2024. Bankarnir spá allir að verðbólga nái 5,1% í lok apríl, sem er yfir 4,7% forsenduákvæði kjarasamninga sem skrifað var undir 2024.Það þýðir að verði verðbólga yfir þessum 4,7% 1. september, má krefjast endurskoðunar á kjarasamningum. Halla segir sterkar vísbendingar um að verðbólga haldi áfram að aukast.„Og ef það heldur áfram, þá gætu forsendur kjarasamninga brostið í haust,“ segir Halla.Er það líklegt? „Það er mikil