Öruggt er fyrir konur að taka verkjalyfið parasetamól á meðgöngu og það eykur ekki áhættu á einhverfu, athyglisbresti eða þroskaröskunum hjá börnum. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem birtist í læknatímaritinu Lancet.Bandaríkjaforseti lagði hart að barnshafandi konum síðasta haust að taka ekki verkjalyfið tylenol, sem inniheldur parasetamól, vegna tengsla þess við einhverfu barna.Rannsakendur skoðuðu niðurstöður 43 ítarlegustu rannsókna um notkun verkjalyfsins á meðgöngu, sem hundruð þúsunda kvenna tóku þátt í. Sérstaklega var horft til rannsókna þar sem móðirin notaði lyfið á meðgöngu og þar sem hún gerði það ekki. Þannig var hægt bera saman systkini og hunsa þætti eins og mismunandi gen og fjölskylduumhverfi.„Þegar við greindum gögnin fundum við engin tengsl, ekkert samband, það eru e