Geðheilbrigðisþjónusta við fanga verður stórbætt með tilfærslu hennar til Landspítala. Heilbrigðisráðherra segir ekki ásættanlegt að fólk fái ekki þá þjónustu sem því beri.Geðheilsuteymi fangelsa flyst frá heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu til Landspítala í apríl til að geta sinnt betur þörfum alvarlega veikra fanga. Úttekt á teyminu fyrir tveimur árum sýndi að fangar fá ekki geðheilbrigðisþjónustu í samræmi við lög en teymið starfar aðeins á dagvinnutíma og hefur ekki fasta viðveru í fangelsunum.Úttektin var gerð af embætti landlæknis, Alma Möller þáverandi landlæknir og núverandi heilbrigðisráðherra bindur vonir við þennan flutning og segir að verið séer að fara yfir alla starfsemi teymisins. HVERGI NÆRRI HÆTT UMBÓTUM „Það er mikið búið að gera í heilbrigðisþjónustu við fanga á liðn