Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna áætlar að fjórar milljónir barna og ungmenna í Afganistan þurfi meðferð vegna vannæringar á næstu 12 mánuðum. Vanfærar konur og konur með börn á brjósti eru einnig viðkvæmur hópur. Talið er að milljón konur þurfi einnig meðferð vegna vannæringar.Framlög til matvæladreifingar hafa dregist verulega saman í Afganistan síðan talibanar komust til valda árið 2021. Þá hefur uppskerubrestur, þurrkar og slæmt efnahagsástand haft sömuleiðis slæm áhrif á lífsskilyrði Afgana. Læknar án landamæra segja að mánaðarlega séu rúmlega þrjú hundruð börn lögð inn til meðferðar við vannæringu á sjúkrahúsið í Herat. Ástandið fer síversnandi og ef fram heldur sem horfir munu fjórar milljónir barna þurfa meðferð við vannæringu í Afganistan á næstunni.