Ákvörðun um að hætta áætlunarflugi Icelandair til Istanbúl í Tyrklandi frá og með 1. febrúar er alfarið á ábyrgð stjórnenda flugfélagsins. Sú ákvörðun byggir á mistökum stjórnenda, að því er segir í yfirlýsingu stjórnar Félags íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, sem Jón Þór Þorvaldsson, formaður félagsins, skrifar undir.Icelandair sagði í tilkynningu í dag að uppbygging flugleiðarinnar hafi krafist undanþágu frá kjarasamningi Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og Icelandair. Stéttarfélagið hafi hinsvegar dregið undanþáguna til baka frá og með 1. febrúar.„Því miður mun afturköllun undanþágunnar leiða til kostnaðarhækkana og óvissu sem gera það að verkum að þessi flugleið og frekari fjárfesting í uppbyggingu hennar er að óbreyttu ekki lengur raunhæf fyrir félagið,“ var haft eftir Boga Nils