Petersen-svítan var opnuð á Menningarnótt í ágúst 2015 - staðurinn er vinsæll og þar er hægt að vera í góðra vina hópi undir beru lofti á stjörnubjörtum nóttum. Sá böggull fylgir skammrifi að hjá góðglöðu fólki slævist oft dómgreindin og því hefur forsætisráðuneytið fengið að kynnast en skrifstofur ráðuneytisins og bílastæði eru í portinu fyrir neðan skemmtistaðinn.Um miðjan desember fengu borgarráðsfulltrúar og heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur erindi frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Undir erindið skrifar Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn, og þar rekur hann hvernig forsætisráðuneytið hafi þurft að leggja í töluverðar viðgerðir vegna skemmda sem orðið hafa á bíl ráðuneytisins þegar gestir á útiveitingasvæðinu missa eða henda fram af svölunum glerglösum eða -flösku