Sigríður Hjaltested vísar ásökunum Barböru Björnsdóttur um einelti í rúmlega 20 ár á bug. Báðar hafa þær verið dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur frá 2013.Til tíðinda dró í réttarhöldum yfir Margréti Friðriksdóttur í morgun, sem ákærð er fyrir ærumeiðingar og aðdróttanir í garð Barböru eftir að sú síðarnefnda sakfelldi hana fyrir líflátshótanir. Þeim dómi var síðar snúið í Landsrétti.Barbara sagði við réttarhöldin að ekkert væri til í orðum Margrétar sem sakaði hana um lauslæti, misnotkun dómsvalds og að hafa selt blíðu sína til að komast áfram í dómaraembætti. Hún sagði að orðrómur hefði gengið í dómshúsinu um meint samband hennar og Símonar Sigvaldasonar dómstjóra en sagði hann rangan. Barbara rakti orðróminn til Sigríðar sem hún sakaði um að hafa lagt sig í einelti frá 2003. SIGRÍÐUR N