Icelandair hefur ákveðið að hætta flugi til Istanbúl frá og með 1. febrúar.Í tilkynningu frá Icelandair kemur fram að uppbygging flugleiðarinnar hafi krafist undanþágu frá kjarasamningi Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og Icelandair. Stéttarfélagið hafi hinsvegar dregið undanþáguna til baka frá og með 1. febrúar.Farþegar sem verða fyrir áhrifum geta valið um endurbókun með tengiflugi eða endurgreiðslu farmiða.Flugfélagið hóf flug til Istanbúl í september í fyrra. AFTURKÖLLUN UNDANÞÁGUNNAR LEIÐI TIL ÓVISSU OG KOSTNAÐARHÆKKANA Haft er eftir forstjóra Icelandair, Boga Nils Bogasyni, að fyrirtækið hafi séð mikil tækifæri í því að byggja upp Istanbúl sem nýjan áfangastað í leiðakerfi Icelandair, sem tengingu Mið-Austurlanda og Asíu við Ísland og Norður-Ameríku.„Því miður mun afturköll