Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Viðbúnaðarstigi aflýst á Keflavíkurflugvelli

Viðbúnaðarstigi á Keflavíkurflugvelli hefur verið aflýst eftir að flugvél Air France af Airbus-gerð lenti á vellinum vegna mögulegrar bilunar.Flugvélin lenti án vandræða klukkan 14:45 og eru farþegar farnir frá borði að sögn Guðjóns Helgasonar, upplýsingafulltrúa Isavia. Um 180 manns voru um borð í vélinni sem var á leið frá Charles de Gaulle-flugvelli í París til Las Vegas. Flugvélin var nálægt Grænlandsströndum á leið sinni yfir hafið þegar henni var snúið við. Guðjón segir að flugstjóri vélarinnar hafi óskað eftir því að fá að lenda vegna mögulegrar bilunar í flugvélinni. Keflavíkurflugvöllur hafi verið nálægasti flugvöllurinn til lendingar. Hann segir atvik sem þessi gerast um einu sinni til tvisvar í viku og því hafi viðbúnaðarstig verið hefðbundið.
Viðbúnaðarstigi aflýst á Keflavíkurflugvelli

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta