Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar, segir af sér þingmennsku vegna tilrauna til að kaupa vændi árið 2012.Vísir greindi frá þessu í morgun og segir að Guðbrandur hafi tekið ákvörðun um að segja af sér þingmennsku eftir að fjölmiðillinn spurði hann út í málið.Í yfirlýsingu Guðbrands til Vísis segist hann hafa gert alvarleg mistök, sem hann sjái mjög eftir. Hann hafi neitað sök hjá lögreglu en neitar ekki í samtali við Vísi að hafa reynt að kaupa vændi á einhverjum á tímapunkti.Guðbrandur hefur verið þingmaður fyrir Suðurkjördæmi frá 2021.Fréttin hefur verið uppfærð.