Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur stofnað sérsakt friðarráð til að stjórna Gaza tímabundið. Þetta tilkynnti hann á samfélagsmiðli sínu Truth Social.Meðal tillagna í friðaráætlun Trumps eru að Hamas afvopnist og að sérstök tímabundin stjórn verði skipuð yfir Gaza. Trump tilkynnti í september í fyrra að Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, muni eiga sæti í friðarráðinu.Þetta er annað þrep af af tuttugu liða friðaráætlun. Trump verður formaður nefndarinnar. Fimmtán manna nefnd, skipuð palestínskum teknókrötum, starfa undir friðarnefndinni.Aðalsamningamaður Hamas hefur sagt samtökin reiðubúin að láta vopn af hendi til nýrrar palestínskrar stjórnar ef Ísraelar binda enda á hernám sitt.