Eyðing hitabeltisskóga hefur áhrif á blóðþorsta moskítóflugna. Þær sækja meira í mannabyggðir og þar með mannablóð á svæðum þar sem mikil eyðing skóga fer fram. Þetta eykur líkur á útbreiðslu hættulegra veirusjúkdóma eins gulusótt.Þetta kemur fram í rannsókn sem birtist í vísindaritinu Frontiers of Ecology and Evolution.Í rannsókninni var blóð rannsakað úr rúmlega 1700 moskítóflugum í Brasilíu. Einn hópur blóðfullra moskítóflugna hafði drukkið blóð úr 18 manneskjum, einu froskdýri, sex fuglum, einum hundi og einni mús.Moskítóflugur fundust í fyrsta sinn á Íslandi í október í fyrra. Hún er af tegundinni Culiseta Annulata, er mjög kuldaþolin og er líklega komin til að vera, samkvæmt skordýrafræðingum. > @ruvfrettir Moskítóflugur eru komnar til landsins. En hvers vegna hefur hún ekki náð fótf