Mikið hefur snjóað á Akureyri undanfarna daga og snjómokstursmenn hafa því haft nóg að gera.Finnur Aðalbjörnsson er búinn að vera í 16 ár að moka fyrir bæinn segir þetta ekki lærast á einum degi.„Þetta er alltaf gaman enn þá, annars væri maður nú ekkert í þessu ef þetta væri ömurlegt sko.“Hann segir byrja að moka um fjögur þegar snjórinn er mikill.„2017, þá fórum við 17 nætur í röð klukkan 3 eða 4.“