Sendiherraefni Bandaríkjanna, sem grínaðist við bandaríska þingmenn um að Ísland yrði 52. ríki Bandaríkjanna, hefur beðist afsökunar á ummælunum. Fjölmiðillinn Politico greindi frá orðum Long í gær og vakti það óhug margra, einkum í ljósi fundar Danmerkur, Grænlands og Bandaríkjanna um ásælni Bandaríkjanna í Grænlandi í gær.Utanríkisráðuneytið hafði samband við bandaríska sendiráðið til að kanna sanngildi ummælanna í kjölfarið. Long baðst afsökunar á ummælunum í samtali við vefmiðilinn Arctic Today og staðfesti þar með að hann hefði látið þau falla. GRÍNIÐ VÍSAÐI TIL SENDIFULLTRÚA BANDARÍKJANNA Á GRÆNLANDI Hann kvaðst ekki hafa verið meðvitaður um viðbrögðin á Íslandi við ummælunum en skilji þau vel í ljósi stöðu mála á Grænlandi. Hann ítreki því að þau hafi verið sögð í gamni og kveðst