Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stígur til hliðar sem forstjóri Deloitte eftir ákæru um kynferðisbrot

Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri Deloitte á Íslandi, hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot. Honum er gefið að sök að hafa áreitt unga konu á hóteli á Suðurlandi vorið 2023.Vísir greinir frá.Í yfirlýsingu segist Þorsteinn Pétur stíga til hliðar sem forstjóri Deloitte á meðan málið er leitt til lykta, en neitar ásökunum. LÉT EKKI AF HÁTTSEMI SINNI FYRR EN VINKONA KONUNNAR STÖÐVAÐI HANN Í frétt Vísis af ákærunni, sem verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjaness 20. janúar, segir að Þorsteini Pétri sé gefið að sök að hafa kysst brotaþola gegn hennar vilja. Hann hafi hlaupið að henni, ýtt henni upp við vegg, sett tunguna í munn hennar og káfað á kynfærum hennar innanklæða.Þorsteinn Pétur er sagður hafa haldið háttsemi sinni áfram þar til vinkona brotaþola kom að þeim, reif í jakka hans
Stígur til hliðar sem forstjóri Deloitte eftir ákæru um kynferðisbrot

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta