Ný skýrsla um starfsemi Vöggustofu Thorvaldsenfélagsins var kynnt í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Hún tekur til áranna 1974 til 1979.Fyrri skýrsla um starfsemi tveggja vöggustofa frá 1949 til 1973 leiddi í ljós að börn sættu illri meðferð á viðkvæmasta þroskaskeiði.Þann 11. janúar 2024 samþykkti borgarráð að setja á stofn nefnd þriggja óháðra sérfræðinga til að gera heildstæða athugun á starfsemi Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins árin 1974-1979.Nefndina skipuðu Trausti Fannar Valsson dósent, formaður, Urður Njarðvík, prófessor í barnasálfræði og Ellý Þorsteinsdóttir, félagsráðgjafi. BÖRNIN SÆTTU EKKI ILLRI MEÐFERÐ, Í LAGALEGUM SKILNINGI Niðurstöður nefndarinnar voru kynntar á blaðamannafundi í dag. Þar segir að ekki sé unnt að slá því föstu að börn, sem voru vistuð þar, hafi sætt illri meðf