Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stefna ríkinu út af Sóltúni: „Við viljum að fólkið okkar fái að lifa í friði, deyja í friði“

Hópur aðstandenda á Sóltúni ætlar að stefna íslenska ríkinu út af byggingarframkvæmdum við hjúkrunarheimilið. Aðstandendurnir telja að með framkvæmdunum sé verið að brjóta gegn mannréttindum heimilisfólksins. Þetta segir Einar Stefánsson augnlæknir. Eiginkona Einars, Bryndís Þórðardóttir, er með Alzheimer og hefur búið á Sóltúni í þrjú ár. Starfsemi Sóltúns byggir á samningi við íslenska ríkið í gegnum Sjúkratryggingar Íslands en reksturinn er í eigu einkaaðila.Framkvæmdirnar á Sóltúni eiga að taka tvö ár. Eiginkona Einars býr á efstu hæð Sóltúns. Hluti framkvæmdanna snýst um að byggja heila, nýja hæð ofan á hjúkrunarheimilið. Heimilisfólkið á Sóltúni á að búa í húsnæðinu á meðan. „Við viljum að fólkið okkar fái að lifa í friði, deyja í friði, og við viljum ekki að fólkið okkar lifi og dey
Stefna ríkinu út af Sóltúni: „Við viljum að fólkið okkar fái að lifa í friði, deyja í friði“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta