Írani sem býr hér á landi bindur vonir við að Bandaríkjaforseti standi við orð sín og skerist í leikinn í Íran. Hann líkir ástandinu í heimalandinu við Þýskaland nasismans. LÁTA LÍKIN LIGGJA Í HRÚGUM TIL ÞESS AÐ HRÆÐA FÓLK Mótmælendur hafa þyrpst út á götur í Íran dag eftir dag frá 28. desember. Mótmælin hófust með verkfalli verslunareigenda í höfuðborginni Teheran í mótmælaskyni við bágborið efnahagsástand og lágt gengi íranska ríalsins gagnvart bandaríkjadal. Verkfallið varð að ófriðarbáli og lenti mótmælendum saman við lögreglu. Sex voru drepnir.Mótmælin hafa undið upp á sig á síðustu tveimur vikum. Þau eru talin þau fjölmennustu og útbreiddustu í Íran síðan klerkastjórnin tók völdin árið 1979. Í byrjun var efnahagsástandi landsins mótmælt, en fljótlega fór krafa um stjórnarskipti að