Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði sölu og dreifingu áfengis í húsnæði í Kópavogi á mánudag. Þrír voru handteknir á vettvangi vegna málsins og færðir á lögreglustöð en síðan sleppt að loknum yfirheyrslum.Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglunni.Þar segir að aðgerðin hafi verið í tengslum við rannsókn embættisins á brotum gegn áfengislögum, brotum á lögum um matvæli og tollalögum. Lögregla lagði hald á töluvert magn af áfengi í aðgerðinni.