Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tveir áfram í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás

Tveir karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á alvarlegri líkamsárás í Reykjavík í síðustu viku.Karlmaður fannst utandyra í austurborginni á föstudag með alvarlega áverka. Í kjölfarið voru tveir menn handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald fram til dagsins í dag. Það var síðan framlengt í héraðsdómi í dag.Annar maðurinn, sem er á þrítugsaldri, var úrskurðaður í fjögurra vikna varðhald á grundvelli almannahagsmuna en hinn, á fimmtugsaldri, í vikulangt varðhald vegna rannsóknarhagsmuna.Tveir menn verða áfram í haldi.RÚV / Ragnar Visage
Tveir áfram í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta