Stjórnvöld í Úganda slökktu á netinu í gær, aðeins tveimur dögum fyrir kosningar sem fara fram í landinu á morgun. Búist er við því að Yoweri Museveni, forseti landsins, fari með sigur af hólmi í kosningunum og nái þar með að framlengja valdatíð sína sem staðið hefur í 40 ár. Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst yfir áhyggjum af aðgerðum úganskra stjórnvalda svo skömmu fyrir kosningar. „Takmarkanir á netinu og brottrekstur 10 frjálsra félagasamtaka í aðdraganda kosninganna á morgun veldur miklum áhyggjum. Opið aðgengi til samskipta og upplýsinga er lykilatriði fyrir frjálsar og sannar kosningar. Allir íbúar Úganda verða að geta mótað eigin framtíð og framtíð lands síns,“ sagði í færslu Mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna á samfélagsmiðlinum X.Þá hafa mannréttindasamtökin Human Rights Watch