Hörð innflytjendastefna í Bandaríkjunum hefur hægt verulega á komu innflytjenda til landsins. Bandaríska hugveitan Brookings Institution varar við afleiðingum þessarar þróunar í skýrslu sem birt var í dag.Á síðasta ári yfirgáfu fleiri innflytjendur Bandaríkin en komu til landsins, en það er í fyrsta sinn síðastliðin fimmtíu ár sem það gerist. Margt bendir til að sú þróun haldi áfram á þessu ári. Afleiðingarnar gætu orðið minni atvinnuþátttaka, og haft áhrif á verga þjóðarframleiðslu og neyslu. Höfundar skýrslunnar bæta þó við að nýlegar takmarkanir á aðgengi að opinberum gögnum, geri það erfitt að að setja fram nákvæma spá um þróunina.Mótmæli gegn aðgerðum innflytjendastofnunar Bandaríkjanna, ICE.EPA / OLGA FEDOROVA