Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Íranar hóta árásum á bandarískar herstöðvar ef til inngrips kemur

Íranar segjast tilbúnir til að gera árásir á herstöðvar Bandaríkjanna í nágrannalöndum sínum ef Bandaríkin skerast í leikinn í blóðugum mótmælum sem þar geisa.Mótmælendur hafa þyrpst út á götur í Íran dag eftir dag frá því undir lok síðasta árs. Klerkastjórnin í landinu hefur gripið til harðra aðgerða og meðal annars lokað fyrir Internetið. Mannréttindasamtök segja um 2.600 mótmælendur hafa verið drepna. BANDARÍKJAFORSETI HEFUR HÓTAÐ HÖRÐUM AÐGERÐUM Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hvatt mótmælendur til að láta ekki deigan síga. Hann hefur þegar lagt tuttugu og fimm prósenta tolla á ríki sem eiga í viðskiptum við Íran. Hann hefur hótað mjög hörðum viðbrögðum ef Íranar hefja aftökur á mótmælendum. Fjölskylda ungs manns sem var handtekinn í mótmælunum á fimmtudag segir hann ekki hafa
Íranar hóta árásum á bandarískar herstöðvar ef til inngrips kemur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta