Baltasar Samper listmálari er látinn, 88 ára að aldri.Baltasar Samper fæddist í Barselóna á Spáni 9. janúar 1938. Hann stundaði nám við listaháskólann í Barselóna og útskrifaðist þaðan árið 1961. Hann hélt síðan í heimsreisu með viðkomu á Íslandi sama ár og bjó hér samfleytt frá 1963.Á Íslandi kynntist hann eiginkonu sinni Kristjönu og þau héldu tugi einkasýninga víða um land enda var Baltasar alla tíð afkastamikill listamaður og kenndi meðal annars við Myndlista- og handíðaskóla Íslands.Baltasar var þekktur fyrir stór og mikilfengleg málverk og stórar myndir. Sjálfur sagði hann að birtan á Íslandi hefði haft mest áhrif á það sem hann gerði því hún væri engu lík, sólin lágt á lofti og skuggarnir sem fylgja. Meðal þekktustu verka Baltasars eru veggskreyting í Flateyjarkirkju og freska í Víð