Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Danir auka viðveru hersins á Grænlandi

Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, og Troels Lund Poulsen varnarmálaráðherra ræða við blaðamenn að loknum fundi í utanríkismálanefnd danska þingsins í gær.EPA / Sebastian Elias UthDanir ætla að auka viðveru hers síns á Grænlandi. Þetta segir Troel Lund Poulsen varnarmálaráðherra Danmerkur í skriflegum samskiptum við AFP.Bandarísk stjórnvöld hafa lengi gagnrýnt þau dönsku fyrir að hafa vanrækt varnir Grænlands.Poulsen segir auk þess að áhersla verði lögð á aukna viðveru Atlantshafsbandalagsins á norðurslóðum. Danir eigi í samskiptum við bandamenn sína um aukin umsvif á þessu ári.
Danir auka viðveru hersins á Grænlandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta