Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Frakkar opna ræðismannsskrifstofu á Grænlandi

Frakkar ætla að opna ræðismannsskrifstofu á Grænlandi í næsta mánuði. Jean-Noel Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, segir í viðtali við RTL ákvörðunina hafa verið tekna síðasta sumar við heimsókn Emmanuels Macrons Frakklandsforseta til Grænlands. Barrot hafi síðan heimsótt landið í ágúst til að hefja undirbúning fyrir opnun sendiskrifstofunnar. Stefnt er að því að hún taki til starfa 6. febrúar.Hann segir þetta senda pólitísk skilaboð um vilja Frakka til að hafa meiri viðveru á Grænlandi, þar á meðal í vísindalegu samhengi. Hann bætir því við að Grænlendingar vilji ekki vera í eigu eða lúta yfirráðum Bandaríkjanna. Þeir hafi valið Danmörku, NATO og Evrópusambandið.Grænlenska landsstjórnin kom þeim sjónarmiðum síðast á framfæri í gær, á sameiginlegum blaðamannafundi Jens Frederik Nielsen,
Frakkar opna ræðismannsskrifstofu á Grænlandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta