Hin 47 ára Zoe Saldaña varð tekjuhæsti leikari allra tíma eftir mikla velgengni kvikmyndarinnar Avatar: Fire and Ash þar sem hún fer með hlutverk Neytiri.Kvikmyndir sem Saldaña hefur leikið í hafa þénað um 15 milljarða bandaríkjadala. Þar með toppar hún leikkonuna Scarlet Johanson sem var áður sá leikari eða leikkona hverra myndir höfðu skilað mestum tekjum.Saldaña hefur leikið í þremur tekjuhæstu kvikmyndum allra tíma. Myndin „Avatar“ frá árinu 2009 og framhaldsmyndin „The Way of Water“ eru báðar í hópi þeirra kvikmynda sem eru tekjuhæstar ásamt myndinni „Avengers: Endgame“ frá árinu 2019 þar sem Saldaña fer með hlutverk Gamoru.Árið 2025 hlaut Saldaña Óskarsverðlaun fyrir bestu leikkonu í aukahlutverki fyrir myndina Emilia Péres.