Íbúar á norðan- og austanverðu landinu fá rólegri tíð í dag eftir norðanhríðina í gærmorgun og fyrradag. Þar er spáð hægviðri. Annars staðar á landinu er útlit fyrir austan- og norðaustankalda.Víða er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum. Ófært er um Öxi og Breiðdalsheiði. Þungatakmarkanir eru fyrir vörubifreiðar og stærri hópferðabíla á brúnni yfir Skjálfandafljót á Norðausturvegi.Veðurspáin er svohljóðandi:Austan og norðaustan fimm til þrettán metrar á sekúndu í dag, en hægviðri norðan- og austantil. Dálítil slydda eða snjókoma syðst og smáél fyrir norðan, annars víða þurrt. Frost 2 til 10 stig, en hiti um frostmark við suðurströndina.Norðlægari á morgun, snjókoma austantil og slydda við austurströndina, annars svipað veður.Næstu daga verður norðlæg eða breytileg átt og él, en lengs