Að minnsta kosti 2.571 manns hafa farist í fjöldamótmælunum sem standa nú yfir í Íran. Þetta kom fram í frétt írönsku mannréttindasamtakanna Human Rights Activists News Agency (HRANA), sem eru staðsett í Bandaríkjunum. Samkvæmt þeirra mati hafa andlát 2.403 mótmælenda verið staðfest, þar á meðal tólf barna. Á hinn bóginn hafa að minnsta kosti 147 meðlimir í öryggissveitum og almennir stuðningsmenn stjórnarinnar verið drepnir og níu almennir borgarar sem ekki voru þátttakendur í mótmælunum.Þá telur HRANA að minnst 18.434 manns hafi verið handteknir í mótmælunum og 1.134 hafi særst alvarlega.Þetta eru mun fleiri en hafa farist í mótmælum í Íran í marga áratugi. Til samanburðar má nefna að eitthvað um 551 mótmælandi var drepinn í Mahsa Amini-mótmælunum árið 2022. Fjöldi hinna látnu nú kann að