Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Seðlabankastjórar standa við bakið á Powell

Seðlabankastjórar um víða veröld lýsa yfir fullum stuðningi við Jerome Powell, bankastjóra bandaríska seðlabankans. Hann er til rannsóknar hjá alríkissaksóknara. Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna stýrir rannsókninni sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagst ekkert vita af.Í yfirlýsingu sem meðal annars er undirrituð af bankastjórum Englandsbanka, evrópska seðlabankans og seðlabönkum Danmerkur og Svíþjóðar segir að Powell hafi starfað af heilindum. Hann hafi einblínt á hlutverk sitt og almannahag. Þar segir að sjálfstæði seðlabanka sé nauðsynlegt til að tryggja efnahagslegan stöðugleika, bæði fyrir fjármálakerfi og almenning.Rannsóknin er sögð tengjast vitnisburði Powells fyrir nefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings á fundi um endurbætur á húsnæði seðlabankans.Þeir Trump og Powell hafa len
Seðlabankastjórar standa við bakið á Powell

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta