Í lok nóvember birtist tilkynning á vef félags-og húsnæðismálaráðuneytisins þar sem greint var frá því að Inga Sæland, þáverandi ráðherra, hefði veitt fjórum verkefnum styrk uppá samtals 60 milljónir. Öll áttu þau að miða að því að tryggja þolendum ofbeldis um allt land aðgengi að stuðningi og ráðgjöf. Sambærilegir styrkir voru veittir í fyrra upp á þrjátíu og fimm milljónir. Inga flutti sig sem kunnugt er yfir í mennta-og barnamálaráðuneytið um helgina. KVENNAATHVARFIÐ FÉKK HÆSTA STYRKINN Styrkirnir eru liður í aðgerðum stjórnvalda til að bregðast við afleiðingum COVID-19 faraldursins. Þegar þeir voru auglýstir var lögð á áhersla á að styrkja ætti verkefni sem byggðust á samstarfi margra gegn ofbeldi.Hæsta styrkinn fengu Samtök um kvennaathvarf til að reka athvarf samtakanna á Akureyri