Lögreglan í Sandnes í Noregi er enn að reyna að rekja uppruna og eiganda tveggja milljóna norskra króna sem fundust í svörtum ruslapoka þar í borg í síðustu viku. Gröfumaður fann ruslapokann og lét lögreglu vita. Hvorki erfðaefni né fingraför hafa fundist á seðlunum en búið er að útiloka að um sé að ræða ráðsfeng úr Nokas-ráninu árið 2004. Komið hefur til tals að greiða gröfumanninum fundarlaun. Seðlarnir gagnast þó engum í dag þar sem þeir urðu ógildir á árunum 2018 til 2020.Sandnes í Noregi.Wikimedia commons / Alexey Topolyanskiy