Losun gróðurhúsalofttegunda jókst um 2,4% í Bandaríkjunum á síðasta ári eftir tveggja ára samdrátt. Ástæðan er stóraukin orkunotkun vegna vetrarkulda og gervigreindar. Þetta sýna bráðabirgðaniðurstöður í skýrslu hugveitunnar Rhodium Group. Orkunotkun vegna veðurs og húshitunar er breytileg milli ára en eftirspurn hefur aukist mikið eftir orku fyrir gagnaver, rafmyntagröft og aðra stórnotendur. Verð á gasi hækkaði og þar með jókst eftirspurn eftir kolum, sem er sá orkugjafi sem mengar mest og hefur mikil áhrif á losun gróðurhúsalofttegunda. Hlutfall kola í raforkuframleiðslu var 13% hærra á síðasta ári en árið áður. NOTKUN SÓLARORKU EYKST Á hinn bóginn jókst notkun sólarorku um 34%. Þar með hækkaði hlutfall notkunar á orkugjafa með enga losun gróðurhúsalofttegunda. Útblástur bíla, sem er