„Við munum taka símtal okkar á milli þar sem við förum aðeins yfir stöðuna,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra um viðræður við aðra forsætisráðherra Norðurlandanna í dag um málefni Grænlands.Bæði auðvitað þróun síðustu daga og vikna og kannski líka hvernig þau sjá morgundaginn fara fram, segir Kristrún sem vísar til fundar Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, og Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og J.D. Vance, varaforseta Bandaríkjanna, í Washington á morgun.„Partur af þessum fundi er auðvitað þetta nána samstarf sem þessi hópur hefur haft. Við höfum lýst yfir eindregnum stuðningi þegar það kemur að framtíð Grænlands, að hún ráðist í Nuuk og það verða skilaboðin mín inn á þennan fund,“ segir Kristrún.Do