Slökkvilið var að störfum fram undir hádegi í leikmunageymslunni í Gufunesi sem brann í gær, en eldur kviknaði þar ítrekað. Lögregla rannsakar eldsupptök. Reykjavíkurborg átti skemmuna og firrti sig ábyrgð í leigusamningi.Eldur kom ítrekað upp aftur í leikmunageymslunni í Gufunesi sem brann í gærkvöld, en slökkvilið telur sig hafa slökkt endanlega og hefur afhent lögreglu vettvanginn. Skemman var í eigu Reykjavíkurborgar, sem segist enga ábyrgð bera á ástandi hússins.Kvikmyndafyrirtækið TrueNorth leigði skemmuna, sem stóð við Gufunesveg, af Reykjavíkurborg í mars 2024. Í leigusamningnum segir meðal annars að borgin leggi ekki til fé til endurbóta eða viðhalds og beri ekki ábyrgð á tjóni sem kunni að verða á eignum TrueNorth vegna óhapps á borð við eldsvoða.Altjón varð í eldsvoða í skemmunn