J.D. Vance, varaforseti Bandaríkjanna, tekur þátt í fundi þeirra Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, og Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Washington á morgun. Sá síðastnefndi boðaði til fundarins.Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ítrekað lýst því yfir að hann vilji ná yfirráðum yfir Grænlandi. Embættismenn innan Atlantshafsbandalagsins ræða mögulegar aðgerðir til að auka viðveru bandalagsins á norðurslóðum vegna orða forsetans. GRÆNLENDINGAR MÓTFALLNIR YFIRTÖKU Motzfeldt hefur sagst ætla að koma því afdráttarlaust til skila á fundinum að Grænland sé ekki til sölu. Grænlenska landstjórnin sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hún sagðist á engan hátt geta fallist á yfirtöku Bandaríkjanna yfir landinu.Ras