Gærdagurinn var sá kaldasti í Danmörku í fimm ár. Þar hefur ekki mælst meira frost í janúar síðan 2023. Kaldast var á miðju Jótlandi, þar mældist 19,4 stiga frost. Víðast hvar í landinu fór frostið niður fyrir tíu stig.Það hefur hlýnað með morgninum en veðrið er enn til trafala. Úrkoma gerir akstursskilyrði varasöm og danska veðurstofan hefur gefið út viðvaranir vegna þess.Það sama er uppi á teningnum í Noregi. Fyrsta stórhríð vetrarins færir sig upp yfir suðurströndina og búist er við því að 40 sentímetrar af snjó gætu fallið næsta sólarhringinn.Búið er að gefa út appelsínugula veðurviðvörun vegna úrkomunnar. Til skoðunar er hvort gera þurfi slíkt hið sama í austurhluta landsins og í grennd við Ósló. Þíða er í kortunum svo snjókoman breytist á endanum í slyddu. Við það verða akstursskilyr