Samfélagsmiðlarisinn Meta, sem á Facebook, Instagram og Threads, segir að yfir 540 þúsund aðgöngum hafi verið lokað í Ástralíu eftir að lög tóku þar gildi um samfélagsmiðlabann fyrir börn yngri en sextán ára.Stjórnvöld í Ástralíu hafa farið fram á að stórir samfélagsmiðlar eins og Meta, TikTok og YouTube komi í veg fyrir að börn geti átt þar reikninga. Grípi fyrirtækin ekki til viðeigandi ráðstafana verði þau sektuð um 33 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega fjögurra milljarða króna.Meta segir að lögunum verði fylgt en hvetur áströlsk stjórnvöld til að vinna með fyrirtækjum í þessari grein til að finna betri leið fram á við. Til dæmis með því að hvetja greinina til að miða enn frekar að því að tryggja örugga notkun barna á netinu í stað þess að grípa til almennra bannákvæða, segir í