Fjöldi landsmanna urðu varir við magnað sjónarspil í gær þegar norðurljósin dönsuðu á himni. Skipstjóri hjá ferðaþjónustufyrirtækinu Eldingu, sem farið hefur með ferðamenn í norðurljósaferðir í rúman áratug, segist aldrei áður á ferlinum hafa séð jafn litrík og falleg norðurljós.„Við fórum klukkan níu út og þetta var þegar byrjað yfir, flott ljós, strax klukkan átta um kvöldið eða fyrr. Og svo fórum við bara hérna út í myrkrið og þar sést þetta og fólk nýtur þess mikið betur að horfa á það þar og það logaði allt alveg fram til rétt fyrir ellefu,“ segir Guðmundur E. Magnússon, skipstjóri.. FERÐAMENN ORÐLAUSIR AF UNDRUN Guðmundur hefur farið með ferðamenn í norðurljósaferðir í rúman áratug og segir ferðamennina marga hafa orðið orðlausa af undrun.„Þau eru aftur á dekki og dásama þetta alv