Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þyrlan flutti slasaðan mann eftir bílveltu

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á níunda tímanum í morgun til að aðstoða lögregluna á Suðurlandi. Tilkynning hafði þá borist um bílveltu en aðstoðar var óskað að leita nákvæmrar staðsetningar, milli Jökulsárlóns og Breiðdalsvíkur.Maður var einn í bílnum og fannst áður en þyrlan þurfti að hefja leit, en þyrlusveitin var þess í stað beðin um að sækja manninn á Kirkjubæjarklaustur og flytja til aðhlynningar í Reykjavík. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Gæslunnar, hafði ekki upplýsingar um líðan mannsins en að þörf hafi verið talin á að flytja hann til Reykjavíkur.RÚV / Kristófer Óli Birkisson
Þyrlan flutti slasaðan mann eftir bílveltu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta