Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Önnur umferð þingkosninga hafin

Kjörstaðir hafa verið opnaðir fyrir aðra umferð þingkosninga í Mjanmar. Fulltrúa eftirlitsstofnana grunar að herforingjastjórnin muni halda völdum að þeim loknum í gervi borgaralegra stjórnvalda.Kjósandi sýnir sérstakt blek á litla fingri til marks um að hún hafi greitt atkvæði í þingkosningunum.EPA / NYEIN CHAN NAINGHerinn rændi völdum eftir kosningar 2020 og sagði brögð í tafli. Afgerandi sigur Lýðræðisfylkingar Aung San Suu Kyi á flokkum hliðhollum hernum hefði náðst með kosningasvindli.Hún hefur síðan þá setið í stofufangelsi, flokkur hennar leystur upp og herinn stjórnað með harðri hendi. Samstöðu- og þróunarflokkurinn, sem nýtur stuðnings hersins, hlaut nærri 90 prósent atkvæða í fyrstu umferðinni. Þriðji áfangi kosninganna verður svo haldinn 25. janúar.
Önnur umferð þingkosninga hafin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta